Bryggjuball 7 og 14.júní

Þar sem Danshöllinn verðu lokuð í júní verðum við með bryggjuball fimmtudagana
7 og 14.júní kl. 20.00 – 22.00.
Staðsetning: Bryggjan kaffihús við Sjóminjasafnið á Granda
enginn aðgangseyrir

Posted in á döfinni | Leave a comment

Posted in á döfinni | Leave a comment

20 ára afmæli KOD

Afmælishátíð á Hótel Örk, Hveragerði. 28 – 30.okt 2011.

Föstudagur 28.okt.

Kl.14.00 Opnað fyrir innritun á hótelið, sundlaug og gufubað.

kl. 17.00 Eftirmiðdagsdans

kl. 19.30 Kvöldverður af hlaðborði

kl. 21.30 Dansleikur í Aðalgerði-Hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar

kl. 21.30 Dansleikur í Glæsigerði-geisladiskatónlist

Laugardagur 29.okt

kl. 08.30 – 10.00 Morgunverður

kl. 10.30 Dansnámskeið með norskum leiðbeinendum í Aðalgerði og Glæsigerði

kl. 12.30 Súpa og brauð kr 800,-

kl. 14.00 Gönguferð um Hveragerði + Eden

kl. 16.00 Dansnámskeið með norskum leiðbeinendum í Aðalgerði og Glæsigerði

kl. 19.00 Fordrykkur og söngur í Glæsigerði

kl. 19.30 Hátíðarkvöldverður með dagskrá og skemmtiatriðum

22.00 Dansleikur í Aðalgerði-Hljómsv. Friðjóns Jóhannssonar

kl. 22.00 Dansleikur í Glæsigerði með geisladiskatónlist

Sunnudagur 30.okt

kl. 09.00 morgunverður

kl. 11.00 kveðjudans í Aðalgerði

kl. 12.00 Heimferð

kl. 17.00 – 18.30 Eftirmiðdagsdans í Danshöllinni, Drafnarfelli

Kostnaður:

2 nætur í tveggja manna herb m/morgunv.

kvöldverður af hlaðborði föstudagskvöld

Fordrykkur og hátíðarkvöldverður m/dagskrá laugadagskvöld

2 dansnámskeið m/norskum leiðbeinendum

2 dansleikir m/hljómsveit og geislatónlist

Samtals kr 16.000,-  aukagjald í einbýli kr 5000.-

Klæðnaður föstudagskvöld : frjáls klæðnaður

laugardagskvöld: spariklæðnaður

Hótelið býður aðgang að gufubaði, sundlaug, billiardborði, boccia og öðrum þægindum hótelsins.

Reiknað er með þátttöku félaga í Kom og dans í Noregi, Danmörku og Færeyjum

Upplýsingar og pantanir hjá Gunnari Þorlákssyni í s: 863 5100

Þátttaka tilkynnist fyrir 1.okt.2011

skráning tekur ekki gildi fyrr en greiðsla hefur borist.

Posted in á döfinni | Leave a comment

Bryggjuball

Bryggjuballið við Kaffihúsið Bryggjan tókst með eindæmum vel. Um eða yfir 90 manns mættu og var þátttaka góð í dansinum. Veðrið gat ekki verið betra hlýtt og blankalogn. Einstaklega skemmtilegt að dansa þarna á bryggjunni og höfðu margir á orði hvort þetta yrði ekki endurtekið. Eins og er er ekki hægt að setja inn myndir en kíkið á Facebook síðuna okkar og þar eru myndir frá Bryggjuballi.

sbv

Posted in á döfinni | Leave a comment

Ingólfstorg. dansleikur á Ingólfstorgi 12.júní fellur niður !

Posted in á döfinni | Leave a comment

Facebook

Við erum komin á facebook… etu vinur?

Posted in á döfinni | Leave a comment

Rokkþemaball 2011

Þá er þemaballi lokið og held ég að flestir hafi skemmt sér ágætlega þrátt fyrir örlitla tæknilega örðugleika sem vonandi fáir tóku eftir. Þátttaka var gífurlega góð í þemaklæðnaði og voru um 80 manns á ballinu. Krakkarnir stóðu sig með eindæmum vel í rokkshowinu og kann ég þeim góðar þakkir fyrir. Einnig vil ég þakka þeim sem komu að undirbúningnum, margar hendur vinna jú létt verk

Posted in á döfinni | Leave a comment

Konudagsball

 Konudagsballið heppnaðist gífurlega vel. Hljómsveitin „Lára og gullfiskarnir „frábær, blandaði gömlu dönsunum og öðru bara vel og endaði ballið síðasta hálftímann á dúndur rokki. Mætingin svo góð að ekki fengu allir sæti inni í sal en það kom vonandi ekki að sök þar sem alltaf mátti tylla sér í lausa stóla á meðan hinir dönsuðu ef  hvíla þurfti lúin bein eða bara spjalla við náungann. Við eigum vonandi eftir að dansa oftar með þessari hljómsveit.

Posted in á döfinni | Leave a comment

Þá er nýlokið „galahelgi á Örkinni“. Danshljómsveit Friðjóns spilaði undir dansi á föstudagskvöldið og var alveg frábær og  feikna skemmtilegt ball. Er það álit undirritaðs og fleiri að hún sé albesta svingdanshljómsveit landsins. Á laugardeginum gat fólk valið um námskeið í Svingi eða línudansi og var mjög góð þáttaka á námskeiðum  og  voru síðan  línudansarnir rifjaðir upp  á ballinu um kvöldið. Guðný Sölvad var  með sýningu og sölu á fallegu glervörum að vanda.  Galakvöldið byrjaði með fordrykk og söng og spiluðu Svanhildur og Bjarni á harmonikku undir og  var eins og við var að búast með glæsilegu fólki og þótti konunum mikið til sín koma þegar herrarnir við borðið stóðu upp í hvert sinn sem þær stóðu upp frá borði og síðan aftur er þær komu til baka. Skemmtileg atriði undir borðum og  var gaman að fá Idol keppnina svona „life“ með Bubba sjálfan sem einn af dómurum. Svanhildur og Páll sáu síðan um múskina það sem eftir lifði kvölds. Á sunnudagsmorguninn var síðan fjörugur kveðjudansleikur undir stjórn Svanhildar. Frábær helgi í alla staði.

Sólrún B Valdimarsd

Posted in á döfinni | Leave a comment

Æfingadansleikur fimmtudaginn 10.febrúar kl. 20.30 – 23.30

Mjög góð þátttaka var á námskeiði „verið ballfær“ sem líkur sunnudaginn 7.febrúar.

Annað námskeið hefst sunnudaginn 13.febrúar.

Posted in á döfinni | Leave a comment