Dansleikir

Fimmtudagskvöld í Danshöllinnni

Fimmtudagskvöld í Danshöllinni

    Á fimmtudagskvöldum eru haldnir svokallaðir Æfingadansleikir í Danshöllinni, þar sem fólk kemur saman og dansar af lífi og sál við fjölbreytta tónlist sem spiluð er af okkar frábæru plötusnúðum. Þó mest sé dansað af svingi og rock ‘n roll er einnig mikið um gömlu dansana, samkvæmisdansa, línudansa og fleiri tegundir dansa. Ballið stendur frá kl.20:00 til 23:00. Yfirleitt er mikið fjölmenni á fimmtudögum í Danshöllinni og borgar sig að mæta tímanlega til að fá borð, þó auðvitað verji flestir kvöldinu á dansgólfinu. Allir eru velkomnir og engin skylda að hafa dansfélaga með sér.

MánudagskvöldFyrirhugað er að hafa æfingakvöld  þar sem ungt fólk kemur saman og æfir dansspor hvort sem er Sving eða Lindyhopp og hefur gaman. Leiðbeinendur í Svingi verða þá á staðnum og gefst fólki kostur á að læra sving og bæta við kunnáttu sína.   þessi kvöld er gjaldfrjáls.

Nánar auglýst síðar

Dansleikir á laugardögum

Um það bil einu sinni í mánuði eru haldnir dansleikir á laugardögum í Danshöllinni. Þá er oft fengin hljómsveit til að leika fyrir dansi og boðið er upp á léttar veitingar. Þessir dansleikir hefjast kl.21:00 og standa til 01:00.

 

Comments are closed.