Námskeið

Skráning er í síma 557 7700.

Komið og dansið standa fyrir auðveldum dansnámskeiðum af ýmsum toga, bæði fyrir byrjendur og lengra komna:

Swing/Rock'n'Roll

Swing / Rock'n'Roll

Línudansar

Línudansar

Ballfær

Ballfær

Salsa

Salsa

Unga fólkið

Unga fólkið

Allir sem einn

Sérstök ástæða er til að nefna að ekki er nauðsynlegt að hafa með sér dansfélaga, og því einnig upplagt fyrir einstaklinga að skella sér á námskeið.

“Ég er einn og þekki fáa, en þær aðferðir að skipta sífellt um dansfélaga gerðu hópinn fljótt að einni skemmtilegri heild”

Starfsemi Komið og dansið hefur með þessu fyrirkomulagi hjálpað mörgum til að finna sig virka þátttakendur, og hver er ekki fær í flest þegar hann hefur tvö kvöld eða um miðja daga um helgar dansað alsgáður við fullt af ókunnugu fólki ?

Klaufar njóta sín vel

Almennu sving/rock’n'roll námskeiðin standa yfir í fimm tíma, tvo og hálfan tíma hvorn dag og gera þátttakendum kleift að byrja með auðveldum hætti og gerast ófeimnir við dansgólf og dansfélaga. Það er samdóma álit þeirra sem sótt hafa námskeiðin að þau séu auðveld og fyrst og fremst skemmtileg. Ekki er fundið að við neinn, en smám saman ná allir tökum á dansinum, sér og öðrum til ánægju. Mistök eru bara til að brosa að, og allir njóta sín vel. Yfirleitt hafa karlmenn verið tregari en konur til að fara á dansnámskeið, en þessi námskeið gera karlmönnum mjög auðvelt fyrir og þörfum karlmanna mætt með því að þeir finni sig fljótlega geta, og hafi á tilfinningunni að þeir séu að stjórna. Í umsögnum þátttakenda hefur komið fram:

“Mér tókst að fá manninn minn með þegar ég gat sýnt fram á að námskeiðið væri bara í tvo daga”

“Fyrra kvöldið fór ég fyrir konuna, en mér fannst þetta skemmtilegt og seinna kvöldið fór ég á staðinn með tilhlökkun”

“Já, það er engin vitleysa að klaufar njóta sín vel”

Námskeið á landsbyggðinni

Komið og dansið hefur verið með námskeið á Egilsstöðum og á Norðurlandi. Að ósk fólks af öðrum stöðum á landsbyggðinni hafa verið haldin námskeið m.a. í Keflavík, Grindavík, Akranesi, Borgarnesi, Búðardal, Ísafirði, Suðureyri, Dalvík, Akureyri, Hveragerði, Selfossi, Þingeyri, Þorlákshöfn, Hellu, Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri, Höfn, Laugarvatni, Árnesi og öllum bæjum á austurlandi. Námskeiðin hafa verið vel sótt, en vegna takmarkaðs fjölda leiðbeinenda hefur ekki verið hægt að sinna landsbyggðinni eins og óskað hefur verið eftir. Vonandi rætist úr því með tímanum.

Upp

Comments are closed.