Samtökin

Hugmyndafræði samtakanna er upprunnin frá Kom og Dans í Noregi, en höfundurinn, Johan Fasting, þróaði framkvæmd námskeiðanna með fagfólki í hreyfingafræði, félagsfræði og tónlistarsmíði. Útgefna tónlist og sérstaklega mótaðar dansæfingar Kom og dans mega þeir einir nota sem viðurkenndir hafa verið sem leiðbeinendur.

Aðalmarkmið námskeiðanna er að kynna auðlærða dansa sem höfða til allra aldurshópa og að námskeiðin séu það stutt að allir telji sig geta fórnað þeim tíma til að kynnast dansi og dansgólfi. Námskeiðin eru kjörinn vettvangur fyrir hópa, vinnufélaga, saumaklúbba og fjölskyldur til að gera eitthvað saman, stutt, ódýrt og skemmtilegt.

Komið og dansið hafa starfað frá árinu 1991, og starfsemi þess sýnt að þörf er fyrir stutt dansnámskeið þar sem þeir eru sérstaklega hvattir til þátttöku sem lítið eða ekkert hafa gert áður í dansmálum. Við erum þeirrar skoðunar að enginn eigi að fara varhluta af þeirri ánægju sem dansinn gefur og gleður. Ágætu félagar og námskeiðsþátttakendur ! Í sameiningu skulum við útbreiða dansinn og auka þátttöku fólks í dansi. Dansgleðin lengi lifi.

Comments are closed.