Blog Layout

Fjör á dansdeginum

Dansdagurinn 23.mars tókst með eindæmum vel

Góða mæting á námskeiðin en við höfðum stutt námskeið í byrjenda swingi, 2 step og línudansi, byrjenda og framhaldsnámskeið í buggi. Góð mæting á dansinn um kvöldið en þar spilaði Páll á hljómborð og Hans Wium spilaði lög af tölvu og skiptu þeir með sér kvöldinu og var því músíkin mjög fjölbreytt.
26 Apr, 2024
Við fögnuðum sumrinu með byrjendabuggnámskeiði kl.19.00 - 20:00 með feikna góðri mætingu. Síðan var okkar hefðbundna danskvöld á eftir sem lauk kl. 22.30 og voru sumir búnir að dansa gat á skóbotnana sína. Næsta danskvöld verður fimmtudaginn 2.maí en danskvöld sem vera átti 4.maí er frestað til 25.maí.
14 Mar, 2024
Nýlega hefur Komið og dansið hefur verið með dansdaga þar sem boðið hefur verið upp á örnámskeið fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Dansdagarnir enda svo með dansleik um kvöldið þar sem boðið er upp á blandaða tónlist og hægt verður að rifja upp námskeið dagsins. Námskeiðin eru kennd af lærðum leiðbeinendum Komið og dansið. Dansdagurinn 23. mars býður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem hægt verður að velja úr einu eða fleirum námskeiðum, m.a. swing fyrir byrjendur, línudans og fleira. Dagskrá: 11:00 - 12:00 Fasting swing (byrjendur) 12:15 - 13:15 2 step 13:30 - 14:30 Bugg byrjendur 14:45 - 15:45 Bugg framhald 16:00 - 17:00 Línudans 20:00 - 23:30 Dansleikur Verðskrá: Stakt námskeið: 1000,- Dansleikur: 2.000,- Öll námskeið + dansleikur: 4.000 ,- Skráningar er ekki krafist en hægt er að tryggja sér pláss hér að neðan.
Share by: